Butterplätzchen

Hráefni
Deig:
2 bollar hveiti
3/4 bollar kalt smjör
1 teskeið vanilludropar
1/3 bollar sykur
1 egg
Smá salt
Krem:
1/2 bolli flórsykur
2 1/2 teskeið sítrónu safi
Kökuskraut
Aðferð
Setjið hveiti, smjör, vanilludropa, sykur og egg í stóra skál. Hnoðið saman þangað til þið getið búið til bolta úr deiginu.
Vefjið plast filmu utan um deigið og setjið inn í ísskáp í 30 mínútur.
Eftir 30 mínútur takið deigið ú ísskápnum og hitið ofninn í 180 gráðður. Setjið bökunarpappír á plötu.
Setjið smá hveiti á flöt og fletjið út deigið. Notið piparkökuform og skerið út form úr deiginu. Leggjið kökurnar á bökunarpappír.
Setjið kökurnar og bakið í 10-12 mínútur eða þangað tið að endarnir eru ljós brúnir.
Takið kökurnar úr ofninum og látið þær kólna í 5 mínútur. Takið kökurnar af bökunarpappírnum og setjið á disk.
Krem:
Hrærið sama flórsykri og sítrónusafa saman í lítillri skál.
Setjið kremið á kökurnar.
Njótið!
Ef þið viljið er hægt að setja kökuskraut á kökurnar.